Hvað þarf til að verða framúrskarandi í tækni og taktík?

Allur  þjálfunarundirbúningur  í  íþróttum  ætti  að  innihalda  andlega  þjálfun,  líkamlegt athæfi,  tækni  og  taktík.  Í  þjálfun  ætti  alltaf  að  æfa  tækni  í upphafi  æfingar,  eftir  upphitun  og  í  lokuðu  umhverfi.  Þegar  einstaklingur  hefur  náð tökum  á  hreyfingunni  er  hægt  að  auka  erfiðleikastig  eins  og  að  bæta  við  leiklíkum aðstæðum.

Tækni í knattspyrnu snýst um alla meðferð á knettinum eins og að rekja, senda, taka á móti, skjóta, skalla og gabbhreyfingar. Allar þessar hreyfingar eru mikilvægar í íþróttinni. Svo dæmi sé tekið er hægt að taka á móti bolta með öllum líkamanum, með höfðinu,  bringunni,  maganum,  lærunum  og  ristunum  og  því  þarf  að  æfa  allar  þessar móttökur.

Aðeins  1,2% – 2,4%  af  hlaupalengd leikmanna er með bolta í hverjum leik en þrátt fyrir það eru það stundir sem geta skipt sköpum  þegar  kemur  að  úrslitum.  Miðjumenn  hlaupa  mest  með  boltann  enda  snýst þeirra hlutverk m.a. um að dreifa boltanum um völlinn og tengja saman vörn og sókn.

Þegar kemur að tækni, eins og mörgu öðru, er þjálfun lykilatriði. Talað er um að  einstaklingur  þurfi  að  eyða  10  þúsund  klukkustundum  í  ákveðna  færni  til  þess  að verða framúrskarandi í henni.

Ef einstaklingur æfir í 3 klukkutíma á dag í 10 ár þá ætti einstaklingur að vera orðin framúrskarandi í færninni.

Til þess að ná þessari færni þarf að æfa utan skipulags æfingatíma og það krefst mikils aga. Tækni er því færni sem þarf að eyða einna mestum tíma í að æfa.

Tækni og taktík í knattspyrnu eru taldir vera ríkjandi þættir í íþróttinni en góð sendingargeta,   tíðni   vel   heppnaðra   sendinga,   tíðni   vel   heppnaðra   móttaka   og meðalfjöldi  snertinga  á  leikmann  er  yfirleitt  hærri  meðal  farsælla  liða  heldur  en ófarsælla.

Gott  er að vinna  með ákveðna áætlun  eða stefnu fyrir hvern leik. Til þess að geta framkvæmt þessa áætlun þarf að hafa ákveðna taktík.

Taktík getur verið misjöfn eftir leikstöðum þó svo að allir leikmenn vinni að sama markmiði en rétt taktík getur  haft  mikil  áhrif  á  úrslit  leiksins. 

Gerð  var rannsókn  sem  skoðaði  mismunandi  hlutverk á  milli leikstaða þegar kom að tækni  og taktík.  Niðurstöður  sýndu  fram  á  að  varnarmenn  og  miðjumenn  hreinsuðu  mikið boltann  burt  frá  sínum  vallarhelming  og  þeir röktu  boltann  mest  miðað  við  aðra leikmenn. 

Í knattspyrnu er markmið allra liða að koma knettinum í mark andstæðingsins og koma í veg fyrir að andstæðingur skori. Leikvöllurinn er stór og því hafa leikmenn oft frelsið til þess að búa eitthvað til. Til þess þarf að hafa góða tækni og hafa gott auga fyrir leiknum og sjá tækifæri sem birtast.

Hluti af leiknum er að geta hreyft sig rétt bæði með bolta og án bolta. Þannig  opnast  svæði  sem  geta þar af leiðandi  skapað tækifæri til þess að sigra leikinn.

Greinin er upp úr lokaritgerð Guðrúnar Þórbjargar Sturlaugsdóttur, íþróttafræðing frá Háskólanum í Reykjavík.

Facebook Comments Box