Viltu auka vellíðan og bæta svefn?

Slökun er góð leið til að auka vellíðan, draga úr álagi, bæta svefn og auka lífsgæði. Eins og með flest annað þá skapar æfingin meistarann og til að eiga auðvelt með að ná góðri slökun þarf að æfa sig reglulega. 

Víða má finna bækur, hljóðdiska eða smáforrit með slökunaræfingum eða tónlist. Einnig getur verið gott að slaka á í baði, í heita pottinum eða fara í slökunarnudd. Rólegar athafnir, eins og að lesa, prjóna eða púsla, geta einnig hjálpað okkur að slaka á. Þá hefur regluleg hreyfing þau áhrif að við eigum oft auðveldara með að slaka á í kjölfarið.

Það er mikilvægt fyrir alla að kunna aðferðir sem henta þeim til að ná góðri slökun. Hér fyrir neðan er einföld en áhrifarík aðferð sem allir geta lært og hægt er að beita nánast hvar sem er:

  • Komdu þér vel fyrir í rúmi, sófa eða stól og lokaðu augunum.
  • Byrjaðu á því að kreppa tærnar eins fast og þú getur og haltu spennunni á meðan þú telur upp á 10. Lykilatriði er að taka vel eftir spennunni á meðan hún varir og beina huganum að henni.
  • Slepptu svo takinu og slakaðu alveg á í u.þ.b. 20 sekúndur áður en þú tekur fyrir næsta líkamshluta. Taktu vel eftir því hvernig slaknar á vöðvunum og ró færist yfir þegar þú slakar á spennunni.
  • Fikraðu þig svo upp líkamann og taktu fyrir hvern vöðvahóp með sama hætti, kálfa, læri og rass, kviðvöðva, bakvöðva, axlir, handleggi og lófa.
  • Þú endar á andlitinu þar sem þú kreistir saman andlitið eins og þú getur, klemmir aftur augun eins og þú sért að draga andlitið saman í hnút, og heldur spennunni í 10 sekúndur áður en þú slakar á.
  • Leyfðu þér að liggja eða sitja áfram í dálitla stund og finndu hvernig kyrrð hefur færst yfir líkamann.
Facebook Comments Box