Litlar daglegar venjur leiða til langtíma árangurs

Þegar taka á upp nýjar venjur er gott að styðjast við eftirfarandi þrjár einfaldar reglur:

1. Gerðu mjög einfalda útgáfu af nýju venjunni. Hún verður að vera það einföld að þú getir ekki sagt nei við henni. Gerðu t.d. 10 hnébeygjur fyrsta daginn.
2. Auktu álagið smám saman. Gerðu t.d. 11 hnébeygjur á degi 2. 
3. Jafnvel eftir að hafa aukið álagið verða allar endurtekningar að vera einfaldar. Brjóttu verkefnið niður í viðráðanlegar einingar. Bættu við einni hnébeygju á hverjum degi. Þegar tölurnar fara hækkandi er gott að brjóta þær niður í minni einingar og taka t.d. þrjú sett (20-20-10). 

Þegar við förum eftir þessum reglum byggjum við í fyrsta lagi upp þol með því að einblína á magnið. Þetta gerir okkur kleift að takast á við stærri áskorun seinna meir. Í öðru lagi gefum við líkamanum tækifæri til að jafna sig. Ef við hefðum tekið of margar hnébeygjur í byrjun hefðu harðsperrurnar hugsanlega skapað ákveðna hindrun. Í þriðja lagi drögum við úr andlegri byrði þess að ljúka við verkefnið. Hnébeygjurnar eru ekki of margar og krefjast því ekki mikillar hvatningar. Síðast en ekki síst þá einblínum við á venjuna frekar en að hafa áhyggjur af útkomunni. 

Tökum nokkur fleiri dæmi. 

Þig langar að hugleiða oftar:

1. Hugleiddu í 60 sekúndur fyrsta daginn.
2. Hugleiddu í 70 sekúndur á öðrum degi.
3. Haltu áfram að auka við sekúndurnar og mínúturnar þangað þú verður komin(n) í viðráðanlega lengd, t.d. 10 mínútur. Síðan er hægt að brjóta tímann niður í smærri einingar, t.d. 5 mínútur á morgnana og fimm mínútur á kvöldin. 

Þig langar að gera meira af því að fara út að ganga. Fyrsta skrefið er að fá þér skrefamæli:
1. Gakktu 1000 skref á fyrsta degi.
2. Gakktu 1100 skref á öðrum degi.
3. Haltu áfram að auka við skrefin þangað til þú verður komin(n) í t.d. 10.000 skref á dag. 

Þig langar að lesa fleiri bækur:
1. Lestu í eina mínútu fyrsta daginn.
2. Lestu í 2 mínútur á degi 2.
3. Auktu við tímann þangað til þú verður komin(n) í tímalengd sem þú ert sátt(ur) við. Ef tíminn er orðinn of langur (t.d. 30 mínútur) gætirðu brotið hann niður í smærri einingar, t.d. tvisvar 15 mínútur.

Margt smátt getur skilað manni miklum árangri á stuttum tíma. 

  • Ef þú byrjar með eina hnébeygju og bætir við einni daglega tækist þér að gera 775 hnébeygjur á 30 dögum.
  • Að taka 1000 skref á dag og bæta við 100 daglega þýðir að þú myndir taka heil 77.500 skref á 30 dögum.
  • Ef þú lest í eina mínútu og bætir við mínútu daglega myndirðu lesa átta klukkutíma á 30 dögum, sem myndi líklega duga til að lesa 400 blaðsíðna bók.

Margt smátt gerir eitt stórt!

Facebook Comments Box