Er laus við eymsli í liðum

Astaxanthin er öflugt andoxunarefni sem er gott fyrir húðina og virkar vel á mörg kerfi líkamans. Náttúrulegasta og hreinasta uppspretta Astaxanthins finnst í smáþörungum sem kallast Haematococcus pluvialis en þeir framleiða þetta sem varnarefni gegn erfiðum aðstæðum í umhverfinu. Astaxanthin getur veitt vörn gegn útfjólubláum geislum sólar og það getur einnig stuðlað að heilbrigði augna, heila, hjarta, liða og vöðva.

Hreint íslenskt Astaxanthin

Algalíf er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á þessum örþörungum og vinnur úr þeim hágæða Astaxantin. Ræktun og framleiðsla fer fram í einangruðum ræktunarkerfum þar sem allir mengunarvaldar eru útilokaðir og eingöngu hreint íslenskt vatn er notað við framleiðsluna. Endurnýtanleg orka er notuð við framleiðsluna og flokkast hún því sem sjálfbær iðnaður.

Finn ótrúlegan mun á mér

Ágústa G. Árnadóttir eigandi Líkama &
Boost og hóptímakennari hjá Sporthúsinu ákvað að prófa Astaxanthin og fann fljótt mun á sér:

„Ég finn ótrúlegan mun á mér eftir að ég byrjaði að taka Astaxanthin. Nú get ég farið í sólbað án þess að brenna, en það sem stendur upp úr hjá mér er að ég finn ekki lengur til í liðum þegar ég fer fram úr á morgnanna. Ég mæli hiklaust með að fólk prufi. Gerði kraftaverk fyrir mig.“

Aukinn árangur í íþróttum

Astaxanthin berst gegn ferli oxunar og sindurefna sem herja á frumur líkamanns með tímanum. Það getur dregið úr myndun mjólkursýru í vöðvum og þreytu, bætt þol og styrk og stuðlað að skjótu jafnvægi í líkamanum eftir æfingar. Það er því mjög gott fyrir íþróttafólk sem vilja ná sem bestum árangri.

Mikið af Astaxanthin er t.d. í vöðvum laxa og vilja sumir meina að það gefi laxinum þá orku sem hann þarf til að synda gegn straumnum. Húð, vöðvar, liðbönd, sinar, augu, innri líffæri, hjarta- og æðakerfi ásamt taugakerfi eru öll móttækileg fyrir Astaxanthin, sem gerir það einstaklega virkt meðal andoxunarefna.

Dagleg inntaka

Það tekur Astaxanthin 12-19 klukkustundir að hámarkast í blóðinu og eftir það brotnar það niður á 3-6 klukkustundum. Þess vegna þarf að taka það inn daglega. Til þess að verja húðina gegn sólargeislum, áður en haldið er í gott sólarfrí er gott að hefja inntöku nokkrum vikum áður. Astaxanthin getur einnig verið gott fyrir augun/sjónhimnuna og dregiðr úr þreytu og álagi á augum og stuðlað að skýrari sjón. Auk þess viðrist Astaxnthin geta dregið úr ýmsum bólgum og eymslum, hvort sem það sé í liðum eða annarsstaðar.

Facebook Comments Box