Að þróa með sér jákvætt viðhorf
Margir eru þeirrar skoðunar að viðhorf þeirra sé afleiðing ytri aðstæðna. Þeir gleyma því að viðhorf okkar er afleiðing þess hvernig við ákveðum að túlka það sem gerist í kringum okkur.
Tökum sem dæmi veðrið. Margir hér á Íslandi láta t.d. haglél eða snjókomu hafa neikvæð áhrif á skapið. Og skipta aftur um skap þegar sólin tekur að skína. Tökum síðan fólk sem býr í Kaliforníu þar sem eru 360 sólskinsdagar á ári. Einn góðan dag í nóvember dró skyndilega fyrir sólu. Það varð dimmt og síðan kom haglél. Börnin þeyttust út og fögnuðu á meðan haglið féll til jarðar. Sami atburðurinn, mismunandi túlkun.
Viðhorf okkar er sía sem ræður því hvernig við lítum á heiminn. Þegar maður velur að finnast rigning leiðinleg upplifir maður slæman dag þegar það rignir. Sumir sjá alltaf sólina í gegnum skýin á meðan aðrir sjá dökku hliðarnar á þessu eina skýi á himninum. Flestir eru kannski einhvers staðar mitt á milli. Hér að neðan eru tíu leiðir sem geta gagnast við að þróa með sér jákvæðara viðhorf:
Leið 1: Endurskilgreindu merkingu ytri aðstæðna
Margir
láta ytri aðstæður hafa neikvæð áhrif á skap sitt. Listin er að breyta
þessum atburðum í eitthvað jákvætt. Þegar maður lendir t.d. í
umferðarteppu gæti verið gott að hugsa hversu skynsamlegt það hafi verið
að leggja svona tímanlega af stað. Einnig er hægt að líta á mótlæti sem
tækifæri til að læra. Henry Ford sagði einu sinni: “Mótlæti er tækifæri
til að byrja upp á nýtt, en með aðeins meira vit í farteskinu.”
Leið 2: Byrjaðu daginn á einhverju jákvæðu
Byrjaðu
daginn á einhverju jákvæðu, t.d. kafla í uppbyggilegri bók eða
skemmtilegu myndbandi. Hressandi tónlist virkar einnig vel þar sem hún
kemur manni ósjálfrátt í gott skap.
Leið 3: Forðastu neikvæð skilaboð
Maður þarf ekki
meira en bara að skoða blöðin til að fá stóran skammt af upplýsingum
sem láta manni líða illa. Mun minna er af uppbyggilegum og jákvæðum
fréttum. Blaðamaður spurði Sam Walton, stofnanda Wal Mart, einu sinni út
í kreppuna. Hann svaraði: “Kreppa, ég tek ekki þátt í henni.” Gott er
að forðast neikvæð skilaboð og fóðra sig á jákvæðu efni.
Leið 4: Forðastu neikvætt fólk
Rannsóknir hafa
sýnt að foreldrar hafa frekar lítil áhrif á hegðun barna sinna. Í gegnum
genin erfa þau í kringum 50% af persónuleikanum. Restin ræðst af ytra
umhverfinu – skólanum og vinum. Þannig virkar það einnig hjá fullorðnu
fólki. Við látum smitast af neikvæðu viðhorfi annarra án þess að átta
okkur á því. Fýlupúkar eru orkusugur sem hafa þann eiginleika að draga
aðra niður með sér. Forðastu fólk sem á það til að nöldra, kvarta og
klaga og taktu ekki þátt í nöldrinu.
Leið 5: Talaðu af öryggi
Bjartsýnt fólk talar af
öryggi. Það segir t.d. ekki: “Ég gæti kannski reynt að sjá hvort þetta
virki hugsanlega.” Orðaval okkar getur haft áhrif á skapið og
orkustigið. Segðu ekki: “Þetta er erfitt, ég veit ekki hvort ég geti
það.” Segðu frekar: “Þetta verður örugglega ekki einfalt. Ég ætla að
gera það sem í mínu valdi stendur til að láta það takast.” Forðastu orð
eins og “en” og “reyna”, sem gefa til kynna að þú hafir ekki stjórn á
aðstæðunum.
Leið 6: Breyttu hugsunum þínum
Sumir hafa
tilhneigingu til að hafa áhyggjur og dvelja við neikvæðar hugsanir.
Þessi straumur neikvæðra hugsana getur orðið að vítahring sem erfitt er
að brjóta. Bjartsýnt fólk hefur annað viðhorf: það réttir úr sér, gengur
hraðar og með meiri orku. Temdu þér bjartsýni jafnvel þó að þér líði
ekki þannig. Það er líka alltaf hægt að finna eitthvað jákvætt í
erfiðleikum eða neikvæðri reynslu.
Leið 7: Einblíndu á það sem þig langar að gera
og
ekki á það sem þig langar ekki að gera. Þegar tekist er á við vandamál
er hægt að hugsa um hversu slæmt ástandið er og hversu mikið það getur
versnað, en það gerir ekki gagn og kostar þar að auki mikla orku.
Einblíndu frekar á það hvernig þú getir breytt aðstæðum þínum. Gerðu
einnig hluti sem þú hefur ánægju af því oft eru það hlutir sem þú gerir
vel og gefa lífinu tilgang.
Leið 8: Einblíndu á framtíðina
Sumir geta ekki
slitið sig frá fortíðinni. Þeir leita að sökudólgum og aðstæður þeirra
eru alltaf einhverjum öðrum um að kenna. Mikilvægt er að átta sig á því
hvar maður er í dag og hvert mann langar. Síðan að búa til skýra mynd í
huganum og láta svo verkin tala.
Leið 9: Einblíndu á lausnir
Þegar maður stendur
andspænis áskorun er miklu skynsamara að einblína á lausnina en
vandamálið. Vandamál eru óþægilegar hindranir sem geta komið í veg fyrir
að maður sjái takmarkið. Um leið og maður einblínir á lausn er maður
farinn að vinna á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.
Leið 10: Dragðu lærdóm af neikvæðri reynslu
Neikvæð reynsla felur oft í sér mikilvægan lærdóm. Þeir sem dvelja við fortíðina festast í sama farinu, fá sömu neikvæðu útkomuna og halda áfram að kvarta. Albert Einstein sagði einu sinni: “Það er ekkert skýrara merki um geðveiki en að gera sömu hlutina aftur og aftur og vænta þess að útkoman verði öðruvísi.” Dragðu lærdóm af neikvæðri reynslu með því að gera lista yfir nýja innsýn sem þessi reynsla gefur þér.
Höfundur greinar er Ingrid Kuhlman