Íþróttir og líkamsímynd

Margir tengja grannt eða vöðvastælt útlit við árangur en varast skyldi að leggja þetta að jöfnu. Margt íþróttafólk finnur fyrir pressu til að vera í ákveðinni líkamsþyngd eða uppfylla ákveðnar útlitskröfur og getur neikvæð líkamsímynd ýtt undir hegðun sem setur heilsu og farsælan feril í hættu. Skyndilegt þyngdartap íþróttamanns getur bætt árangur í stuttan tíma en áhættan sem fylgir því getur reynst dýrkeypt meðal annars með auknum líkum á meiðslum, ofþjálfun, óeðlilegri matarhegðun og tapi á styrk.

Agi, staðfesta, metnaður og skipulagshæfni eru mikilvægir eiginleikar þegar kemur að því að ná árangri í íþróttum. Þegar kröfur um útlit og líkamsvöxt bætast við árangurstengd markmið í íþróttum er sú hætta fyrir hendi að metnaðurinn fari úr hófi fram. Staðalímyndir og hugmyndir um að tiltekinn líkamsvöxtur sé vænlegastur til árangurs geta aukið líkur á að einstaklingurinn þrói með sér átraskanir eða óheilbrigt samband við mat.

Miklar sveiflur í líkamsþyngd eru óæskilegar með tilliti til heilsu og árangurs. Líkamssamsetning ætti í öllum tilfellum að styðja við heilsu íþróttafólks allt árið um kring. Auk árangurs í íþróttum ætti það að vera markmið þeirra sem koma að þjálfun íþróttafólks að stuðla að heilbrigðri líkamsímyndog almennri vellíðan.

Facebook Comments Box