Áhrifavaldar boltaflugsins eru sjö
Ýmsir þættir hafa áhrif á flug golfboltans og ef það er gerð nákvæm greining á því vandamáli þá eru áhrifavaldar boltaflugsins sjö talsins (stefna boltans er miðuð við að kylfingur sé rétthentur)
1. Staða kylfu í höggstöðu.
Kylfan getur verið opin, lokuð, eða hornrétt miðað við höggstefnu. Þetta
hefur áhrif á stefnu og flughæð boltans en opin kylfuhaus veldur háu
flugi til hægri, lokaður kylfuhaus veldur lágu flugi til vinstri og
réttur kylfuhaus gefur beint flug, að því gefnu að sveifluferill sé
hlutlaus (hvorki út-inn eða inn-út).
2. Lega kylfu í höggstöðu.
Legan hefur áhrif á stefnu boltans. Ef hæll kemur fyrst í jörð þá lokast
kylfan og boltaflugið byrjar til vinstri. Ef táin kemur fyrst í jörð þá
opnast kylfa og bolti fer til hægri.
3. Flái kylfu í höggstöðu.
Ef gripendi er fyrir aftan kylfuhaus í höggstöðu þá er flái kylfunnar
aukinn (t.d. 7-járn orðið að 9-járni), og bolti flýgur óeðlilega hátt.
Ef gripendi er fyrir framan kylfuhaus í höggstöðu þá er fláinn minnkaður
og bolti flýgur lágt.
4. Sveifluferill kylfu.
Ferlarnir eru þrír: Inn-út ferill, út-inn ferill eða réttur inn-inn
ferill. Ferill kylfunnar hefur áhrif á upphafsstefnu boltans og snúning.
5. Sveifluvinkill niður í boltann.
Þetta hefur áhrif á flughæð boltans en of flatur vinkill veldur háu flugi en of brattur vinkill of lágu.
6. Hversu vel við hittum boltann.
Þetta hefur áhrif á stefnu og lengd. Ef við hittum á tána þá byrjar
bolti oftast til hægri. Ef við hittum nálægt hæl þá byrjar bolti til
vinstri. Ef við hittum boltann þar sem haus og skaft mætast (í kverkina)
þá fáum við “shankið” ógurlega þar sem bolti skýst til hægri. Bolti
hittur neðarlega á kylfunnar (toppaður eða “þunnur” bolti) veldur lágu
flugi og víbringi í höndunum. Bolti hittur of ofarlega veldur of háu
flugi. Bolti sem er hittur á miðjuna (sweet spot) gefur hina
ómótstæðilegu tilfinningu sem fær okkur til að halda áfram í golfi!
7. Kylfuhraði.
Þessi áhrifavaldur er hvað veigamestur hvað högglengd varðar en
kylfingar sem vilja auka högglengd sína vantar aukinn hraða í
niðursveifluna.
Eftir að hafa skoðað nokkur högg hjá nemanda sem þjáist af of miklu slæsi (lat. slæsus horribilus) get ég séð hvaða áhrifavaldar koma við sögu og gera það að verkum að boltinn sveigir að jafnaði of mikið til hægri. Oftast nær er það út-inn sveifluferill sem veldur, en rótin að honum gæti legið í of veiku gripi (gripið snýr of mikið til vinstri), þannig að oft er um keðjuverkandi orsakir að ræða.
Vonandi hefur þessi pistill hjálpað þér, lesandi góður, að skilja betur áhrifavaldana og hvað það er sem veldur því að boltinn flýgur ekki alltaf á þann hátt sem þú kýst.
Bestu kveðjur,
Úlfar Jónsson