Byrjunarlið Íslands gegn Dönum í undankeppni EM 2012

7.9.2010 | Boltinn
Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt gegn Dönum í undankeppni EM 2012, en íslenska liðið mætir því danska á Parken í Kaupmannahöfn í kvöld.  Tvær breytingar eru gerðar á liðinu frá því í leiknum gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli á föstudag.  Birkir Már Sævarsson kemur inn í hægri bakvörðinn í stað Grétars Rafns Steinssonar, sem meiddist gegn Noregi og er ekki með í kvöld.  Þá kemur Rúrik Gíslason á hægri kantinn og Gylfi Sigurðsson er færður í sóknartengiliðinn í stað Veigars Páls Sigurðssonar, sem tekur sæti á bekknum.

U21 karla - Byrjunarliðið er mætir Tékkum kl. 15:00

7.9.2010 | Boltinn
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Tékkum í dag kl. 15:00 að íslenskum tíma.  Leikurinn er síðasti leikur liðsins í undankeppni fyrir EM 2011.  Byrjunarliðið er þannig skipað:

Ísland - Danmörk í kvöld - beint á Stöð2 Sport

7.9.2010 | Boltinn
Íslenska landsliðið leikur sinn annan leik í undankeppni EM 2012 er liðið sækir Dani heim á Parken.  Íslenska liðið tapaði fyrir Norðmönnum hér heima á föstudaginn 2-1 og voru að marga mati mikil batamerki á liðinu frá síðustu leikjum.  Íslands hefur spilað 20 leiki við Dani og tapað 16 og gert fjögur jafntefli.  Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:15 og er í beinni á Stöð2 Sport.

U-21 árs leikur við Tékka í dag - beint á Stöð2 Sport

7.9.2010 | Boltinn
Undir 21 árs lið Íslands leikur við Tékka í lokaleik sínum í undankeppni EM í dag og hefst leikurinn klukkan 15:00. Hann verður í beinni á Stöð2 Sport. Strákarnir í U21 eiga ennþá möguleika á því að tryggja sér sæti í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2011 sem fram fer í Danmörku.  Tveggja marka sigur á Tékkum tryggir þeim efsta sæti riðilsins og jafntefli gerir það að verkum að þeir verða ein af fjórum þjóðum með bestan árangur í öðru sæti.  Ef íslenska liðið tapar þarf það að treysta á hagstæð úrslit leikja í öðrum riðlum en allir leikirnir eru leiknir á sama tíma.

Upphitun Áfram Íslands klúbbsins í Kaupmannahöfn

6.9.2010 | Boltinn
Áfram Ísland stuðningmannaklúbburinn er búinn að skipuleggja upphitun fyrir Danaleikinn. Leikurinn verður þriðjudaginn 7. september á Parken og byrjar kl 20:15 að staðartíma.

ÍBV meistari í 1. deild kvenna

5.9.2010 | Anton Ingi
ÍBV varð í dag meistari í fyrstu deild kvenna eftir að liðið vann Þrótt 3-1 í leik um fyrsta sætið, en leikurinn fór fram í Þorlákshöfn. Leikurinn var mjög jafn og skemmtilegur.

Úrslitaleikur 1. deildar kvenna fer fram í dag

5.9.2010 | Anton Ingi
Sunnudaginn 5. september leika ÍBV og Þróttur til úrslita í 1. deild kvenna en þessi félög hafa þegar tryggt sér sæti í Pepsi-deild kvenna að ári.  Leikurinn fer fram á Þorlákshafnarvelli og hefst kl. 12:30.

Pepsi-deild kvenna - Valur Íslandsmeistari

5.9.2010 | Anton Ingi
Heil umferð fór fram í Pepsi-deild kvenna í kvöld, en hún var mjög viðburðarík. Valsstúlkur tryggðu sér titilinn með 8-1 sigri á Aftureldingu, vegna þess að FH sigraði Breiðablik 3-2 og Stjarnan sigraði Þór/KA með sömu markatölu.

Pepsi-deild kvenna: Heil umferð í dag

4.9.2010 | Boltinn
Heil umferð verður í Pepsi-deild kvenna í dag.  Allir leikir dagsins hefjast klukkan 14:00 nema leikur Aftureldingar og Vals sem hefst klukkan 17:00.  Vinni Valur sinn leik í dag þá eru þær svo gott sem búnar að tryggja sér Íslandsmeistara titilinn en eftir leiki dagsins eru tvær umferðir eftir og hafa Valsstelpur fjögurra stiga forskot á Breiðablik og fimm stig á Þór/KA. 

Norðmenn tóku öll stigin á Laugardalsvelli

3.9.2010 | Boltinn
Norðmenn unnu Íslendinga 2-1 á Laugardalsvelli í kvöld í fyrsta leiknum í undankeppni EM.  Sigur Norðmanna var langt frá því að teljast sanngjarn en íslenska liðið lék vel í fyrrihálfleik og hafði 1-0 forystu í hálfleik.  Íslenska liðið hefði allavega átt að fá annað stigið úr þessum leik.  Íslenska liðið byrjaði leikinn með talverðum látum og tóku völdin á vellinum.  Liðið komst yfir á 38. mínútu er Heiðar Helguson skoraði mark með góðu hælskoti. Norðmenn jöfnuðu svo leikinn þegar um stundarfjórðungur var liðin var seinnihálfleik og það gerði Brede Hangeland með skalla eftir hornspyrnu.  Norðmenn skoruðu svo sigurmark sitt á 75. mínútu og var það að verki Mohammed Abdellaoue.  Margt jákvætt í þessum leik þrátt fyrir tap og ungu strákarnir sem komu inn sýndu að þeir vilja vera þarna og þeir leikmenn sem hafa undanfarin ár verið með fasta áskrift á sæti þurfa að hafa sig alla við ef þeir vilja klæðast bláu treyjunni aftur. 

Byrjunarlið Íslands gegn Norðmönnum

3.9.2010 | Boltinn
Ólafur Jóhannesson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Noregi í kvöld en leikur hefst klukkan 19:00.  Gunnleifur Vignir Gunnleifsson er í markinu og þá er Gylfi Þór Sigurðsson í liðinu. Þeir Árni Gautur Arason, Bjarni Ólafur Eiríksson, Brynjar Björn Gunnarsson og Matthías Vilhjálmsson verða utan hóps að þessu sinni.

Fylkir riftir samning við Pape | Trúnaðarbrestur milli stjórnar og leikmanns

3.9.2010 | Anton Ingi
Fylkismenn hafa rift samningum við hinn unga og efnilega, Pape Mamadou Faye. Þórður Gíslason, framkvæmdarstjóri meistaraflokks Fylkis, segir í viðtali við vefmiðilinn Fótbolti.net að það hafi orðið trúnarðarbrestur milli stjórnar og leikmannsins.