James Milner verður seldur
23.7.2010 | 08.39 | Boltinn
James Milner leikmaður Aston Villa verður seldur núna í sumar en þetta segir Martin O´Neill, knattspyrnustjóri félagsins. Leikmaðurinn kom til Aston Villa frá Newcastle árið 2008 en Aston Villa hafnaði til að mynda 20m punda tilboði í hann frá Manchester City í maí. O´Neill segir að hann hafi talað við leikmanninn áður en hann fór á HM og þar hafði hann látið í ljós skína að hann vildi fara. O´Neill segir einnig að sú upphæð sem Manchester City vildi borga eða 20m punda væri langt frá því sem Villa-menn vilja fá fyrir hinn 24 ára gamla leikmann. Þá er bara að sjá hvað gerist og hvort Manchester City kemur með enn hærra tilboð til að krækja í leikmanninn.