Eiður hafnaði fjórum enskum úrvalsdeildarliðum

29.8.2009 | 22.59 | Gunnar Gunnarsson
Eiður Smári Guðjohnsen hafnaði tilboðum fjögurra úrvalsdeildarliða um að snúa aftur til Englands. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að hann fari til Mónakó.

Frá þessu er greint í enska blaðinu Sunday Mirror en þar segir að Manchester City hafi verið seinast til að reyna að fanga Eið. Þegar tilboðið barst á fimmtudaginn var það of seint. Portsmouth, West Ham og Stoke reyndu einnig að fá Eið.

Fátt virðist geta komið að Eiður fari til Mónakó og eru viðræður sagðar ganga vel.





Carter