Mark Hughes tekur við Fulham

29.7.2010 | Boltinn
Mark Hughes er aftur mætur í ensku úrvalsdeildina og verður hann næsti knattspyrnustjóri Fulham.  Tekur hann við af Roy Hodgson sem er farinn til Liverpool.  Ekki er búið að staðfesta þetta en breska ríkissjónvarpið BBC segir að þetta verði kunngert í dag. Hughes hefur þjálfað landslið Wales og verið knattspyrnustjóri hjá Blackburn og Manchester City en hann var rekinn frá Manchester City í desember á síðasta ári. Martin Jol var efstur á blaði hjá Lundúna liðinu en Ajax vildi ekki láta hann fara.

VISA-bikarinn: FH áfram eftir 3-1 sigur á Víking Ólafsvík

28.7.2010 | Boltinn
Íslandsmeistarar FH eru komnir í úrslit VISA-bikarkeppni KSÍ eftir að hafa lagt 2. deildar lið Víking frá Ólafsvík að velli 3-1.  FH-ingar komustu yfir í leiknum með marki frá Gunnar Má Guðmundssyni á 40. mínútu. Aðeins mínútu síðar jafnaði Tommy Nielsen leikinn með glæsilegu sjálfsmarki. Það var síðan Atli Viðar Björnsson sem kom FH yfir með marki á 57. mínútu.  Matthías Vilhjálmsson innsiglaði svo sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 70. mínútu.

Raul gerir samning við Schalke

28.7.2010 | Eiríkur Guðmundsson
Raul hefur gert tveggja ára samning við þýska úrvalsdeildaliðið Schalke 04, eftir að hafa yfirgefið Real Madrid eftir 18 ára veru hjá félaginu.

Maradona verður ekki áfram landsliðsþjálfari Argentínu

28.7.2010 | Eiríkur Guðmundsson

Knattspyrnusamband Argentínu greindi frá því í gærkvöldi að samningur Diego Maradona verði ekki framlengdur, en hann rann út eftir Heimsmeistarakeppnina.

Jafntefli hjá nágrönnum á Suðurnesjunum

26.7.2010 | Boltinn
Suðurnesjaliðin Keflavík og Grindavík gerðu 1-1 jafntefli þegar lokaleikur 13. umferðar Pepsideidlar karla fór fram á Sparisjóðsvellinum í Keflavík í kvöld. Stax á áttundu mínútu skoraði Gilles Bang Ondo fyrir Grindavík og kom gestunum yfir.

Pepsi-deildin: Suðurnesjaslagur í kvöld í beinni á Stöð2 Sport

26.7.2010 | Boltinn
Það er enginn smá leikur sem endar 13. umferðina í Pepsi-deildinni þegar Suðurnesjaliðin Keflavík og Grindavík eigast við í Reykjanesbæ.  Keflavík er með 19.stig í fimmta sæti deildarinnar en Grindavík er í 10. sæti með 8. stig.  Leikurinn í kvöld hefst klukkan 20:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð2 Sport.

Pepsi-deildin: ÍBV einir á toppnum - FH sigraði Hafnarfjarðarslaginn

25.7.2010 | Boltinn
Fimm leikir fóru fram í Pepsi-deildarinnar. ÍBV tók forystu í deildinni eftir 3-1 sigur á Val í Eyjum í dag og eru þeir einir á toppnum með 29 stig þar sem Breiðablik tapaði 3-1 fyrir Fram í Laugardalnum.  FH sigraði Hafnarfjarðarslaginn er þeir lögðu granna sína í Haukum 3-1. Rúnar Kristinsson byrjar á sigri í sínum fyrsta leik í Pepsi-deildinni sem þjálfari KR er liðið lagði Selfoss á útivelli 3-0.  Stjarnan tók öll stigin í 2-1 sigri á Fylki.

Pepsi-deildin: 13.umferðin hefst í kvöld

25.7.2010 | Boltinn
13. umferðin í Pepsi-deildinni hefst í kvöld með fimm leikjum. Umferðin klárast svo annað kvöld þegar Keflavík tekur á móti Grindavík í hinum eina sana suðurnesjaslag.  En leikur þessarar umferðar er án efa viðureign FH og Hauka og í fyrsta skipti í sögunni fer fram úrvalsdeildarleikur milli þessara félaga á hafnfirsku landssvæði en fyrri leikur þessara liða fór fram á Vodafonevellinum á Hlíðarenda.  Sjá leiki kvöldsins í meira.

Pepsi-deildin: Alfreð Finnbogason markahæstur

25.7.2010 | Boltinn
Hinn sjóðheiti Alfreð Finnbogason leikmaður Breiðabliks er markahæstur í Pepsi-deildinni þegar 12. umferðir eru búnar. Hefur þessi magnaði leikmaðurinn gert níu mörk þar af tvö úr vítium.  Næstur á eftir honum koma svo þeir Albert Brynjar Ingason leikmaður Fylkis  og Kristinn Steindórsson leikmaður Breiðabliks með sjö mörk hvor.

Pepsimörkin í kvöld klukkan 22:00

25.7.2010 | Boltinn
Pepsimörkin verða á dagskrá Stöðvar2 Sport klukkan 22:00 í kvöld eða strax eftir að leikur FH og Hauka lýkur en leikurinn er í beinni á stöðinni.  Hörður Magnússon verður umsjónarmaður þáttarins í kvöld og þeir Tómas Ingi Tómasson og Magnús Gylfason verða svo með allt sitt á hreinu og draga ekki undan því sem augum ber. Missið ekki af þessu í kvöld klukkan 22:00 á Stöð2 Sport.

VISA-bikar: Valur og Stjarnan spila til úrslita

25.7.2010 | Boltinn
 Það verða lið Vals og Stjörnunar sem spila til úrslita um VISA-bikar kvenna þetta árið.  Valur sem er handhafi bikarsins frá síðustu leiktíð sigraði Þór/KA á heimavelli sínum 3-0 og Stjarnan sótti ÍBV heim til Eyja og sigraði 2-1.  Valur hefur spilað síðustu tvo bikarúrslitaleiki og unnu bikarinn á síðustu leiktíð eins og sagt hefur verið frá. Stjarnan er að spila sinn fyrsta úrslitaleik síðan 1993 og segja sumir að tími sé kominn.  Úrslitaleikurinn verður 15. ágúst n.k og á Laugardalsvelli.

Pepsi-deildin: Leikur Fylkis og KR úr 11. umferð verður 26. ágúst

24.7.2010 | Boltinn
11. umferðin í Pepsi-deild karla getur loksins klárast en það verður samt ekki fyrr en 26. ágúst n.k.  Leikur þessara liða var frestað á sínum tíma út af Evrópuþátttöku liðna en nú er kominn dagsetning sem ætti að standa.  Leikurinn verður spilað eftir 17. umferðina. 

VISA-bikarkvenna: Undanúrslitin í dag

24.7.2010 | Boltinn
Undanúrslit VISA-bikarkeppni kvenna verða háð í dag og hefst báðir leikirnir klukkan 16:00.  Núverandi bikarmeistarar Valur taka á móti Þór/KA á Vodafonevellinum.  Fyrstu deildarlið ÍBV fær Stjörnuna til Eyja.

Tryggðu þér miða á Danmörk - Ísland 7. september

24.7.2010 | Boltinn
Fyrsti útileikur Íslands í undankeppni fyrir EM 2012 verður gegn Dönum, þriðjudaginn 7. september, á Parken.  Það er jafnan einstök stemning sem fylgir landsleikjum á Parken og margir Íslendingar sem hafa áhuga á að sjá okkar stráka eiga við Dani.

Pepsi-deild kvenna: John Andrews tekur við Aftureldingu

24.7.2010 | Boltinn
Írinn John Andrews er nýr þjálfari kvenna liðs Aftureldingar í Pepsi-deild kvenna en þetta var frágengið í gær. Tekur hann við starfinu af Ásgrími Helga Einarssyni sem hætti hjá félaginu í vikunni.  John er öllum hnútum kunnugur hjá Aftureldingu en hann er leikmaður meistaraflokks karla og þjálfar einnig 2. flokk félagsins og lið Hvíta riddarans sem leikur í 3. deildinni og er eins konar varalið Aftureldingar.