VISA-bikar: Valur og Stjarnan spila til úrslita

25.7.2010 | 00.00 | Boltinn
 Það verða lið Vals og Stjörnunar sem spila til úrslita um VISA-bikar kvenna þetta árið.  Valur sem er handhafi bikarsins frá síðustu leiktíð sigraði Þór/KA á heimavelli sínum 3-0 og Stjarnan sótti ÍBV heim til Eyja og sigraði 2-1.  Valur hefur spilað síðustu tvo bikarúrslitaleiki og unnu bikarinn á síðustu leiktíð eins og sagt hefur verið frá. Stjarnan er að spila sinn fyrsta úrslitaleik síðan 1993 og segja sumir að tími sé kominn.  Úrslitaleikurinn verður 15. ágúst n.k og á Laugardalsvelli.





Carter