VISA-bikarinn: FH áfram eftir 3-1 sigur á Víking Ólafsvík

28.7.2010 | 21.42 | Boltinn
Íslandsmeistarar FH eru komnir í úrslit VISA-bikarkeppni KSÍ eftir að hafa lagt 2. deildar lið Víking frá Ólafsvík að velli 3-1.  FH-ingar komustu yfir í leiknum með marki frá Gunnar Má Guðmundssyni á 40. mínútu. Aðeins mínútu síðar jafnaði Tommy Nielsen leikinn með glæsilegu sjálfsmarki. Það var síðan Atli Viðar Björnsson sem kom FH yfir með marki á 57. mínútu.  Matthías Vilhjálmsson innsiglaði svo sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 70. mínútu.

Þetta er í þriðja skiptið sem FH kemst í úrslit bikarsins en þeir hafa sigrað þessa keppni einu sinni en það var árið 2007.

Það kemur svo í ljós annað kvöld hvort það verður KR eða Fram sem leika til úrslita við FH en sá leikur er á morgun og sýndur beint á Stöð2 Sport.






Carter