Tryggðu þér miða á Danmörk - Ísland 7. september
24.7.2010 | 13.09 | Boltinn
Fyrsti útileikur Íslands í undankeppni fyrir EM 2012 verður gegn Dönum, þriðjudaginn 7. september, á Parken. Það er jafnan einstök stemning sem fylgir landsleikjum á Parken og margir Íslendingar sem hafa áhuga á að sjá okkar stráka eiga við Dani.
Þetta verður annar leikur Íslands í undankeppninni en fyrsti leikurinn verður gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli, föstudaginn 3. september. Miðasala á þann leik er nú í fullum gangi.
Hægt er að kaupa miða á leik Danmerkur og Íslands hér vefsíðu KSÍ www.ksi.is