Thierry Henry skoraði í fyrsta leik sínum fyrir NY Red Bulls
23.7.2010 | 08.56 | Boltinn
Thierry Henry spilaði sinn fyrsta leik fyrir New York Red Bulls í nótt er liðið spilaði gegn Tottenham. Henry stimplaði sig heldur betur inn með því að skora eina mark liðsins í 2-1 tapi. Robbie Keane og Garteht Bale gerðu mörk Tottenham í þessum leik.
,, Mörkin eiga eftir að koma og þetta var mjög gaman að vera kominn aftur í leik," sagði Henry.
Henry skrifaði undir fjögurra og hálfsárs samning við félagið en hann kom frá Barcelona.
Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham var bara sáttur við sigurinn en sagði sína menn eiga langt í land enda bara rétt byrjaðir að æfa á ný.
,,
Henry virðist eiga bjarta framtíð hér, sagði Reknapp og glotti. ,,
Hann var frábær og í allt öðrum klassa. Hann er ennþá hágæða leikmaður og með þeim bestu í heiminum. En ég er sáttur við að vinna þennan leik miða við ástand liðsins."