Slúðrið úr bresku pressunni
6.8.2010 | 13.06 | Boltinn
Það er alltaf nóg um að vera í slúðrinu hjá bresku pressunni og höfum við tekið rjóman af því saman og sett í einn pakka sem hægt er að sjá hér fyrir neðan. Oft er um hreint bull að ræða en oft kemur hið sanna í ljós þó síðar verði.
Liverpool og Manchester United verða að bíða til næsta sumars en þá geta þeir hafið baráttu sína um að fá belgíska miðjumanninn Steven Defour en samkvæmt umboðsmanni hans mun leikmaðurinn verða áfram hjá liði sínu Standard Liege. (Sport.co.uk)
Marseille hafa áhuga að fá sinn fyrrum leikmann Didier Drogba til sín frá Chelsea. En félagið er með þrjá leikmenn á lista hjá sér sem þeir vilja fá en hinir tveir eru þeir Alberto Gilardino leikmaður Fiorentina og Luis Suarex hjá Ajax. (Insidefutbol.com)
Liverpool er tilbúið að láta Philipp Degen fara til Stuttgart í Þýskalandi. (Insidefutbol.com)
Chelsea mun leyfa Ashley Cole fara til Real Madrid en bara ef félagið nær að landa Fabio Coentrao bakverði Benfica fyrst. En hann er sagður kosta um 16m punda. (Daily Mirror)
Karim Benzema sóknarmaður Real Madrid gæti verið á leiðinni til Chelsea ef svo fer að Ashley Cole kemur til Madrídar. (Daily Mail)
Emmanuel Adebayor sóknarmaður Manchester City segir að hann vill fara til Juventus þar sem City er að reyna að fá Mario Balotelli frá Inter Milanó. (Daily Mirror)
Manchester City eru ennþá að reyna að fá Zlatan Ibrahimovic frá Barcelona. (Imscouting.com)
Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham ætlar að reyna aftur að fá til sín Scott Loach frá Watford en tilboði hans í janúar var hafnað í leikmanninn. (Daily Mirror)
AC Milan eru að skoða þann möguleika að fá Giovani Dos Santos frá Tottenham. (Footylatest.com)
Arsenal gera sér vonir um að Philippe Mexes frá Roma. (Caugtoffside.com)
Roy Hodgson knattspyrnustjóri Liverpool er sagður vera áhugasamur um að fá þá Shaun Wrigth-Phillips og Wayne Brigde frá Manchester City. (Caugtoside.com)
Aston Villa er tilbúið að láta James Milner fara til Manchester City og ætla þeir að nota peningin sem þeir fá fyrir hann til að kaupa Aiden McGeady frá Celtic. (Daily Mirror)
Cesc Fabregas fyrirliði Arsenal mun gefa yfirlýsingu á næstu klukkutímum hvort hann verði áfram hjá félaginu eða fari heim til Barcelona. (Daily Telegraph)