Raul gerir samning við Schalke

28.7.2010 | 11.09 | Eiríkur Guðmundsson

Raul hefur gert tveggja ára samning við þýska úrvalsdeildaliðið Schalke 04, eftir að hafa yfirgefið Real Madrid eftir 18 ára veru hjá félaginu.

 

Það hafði verið vitað í nokkurn tíma að Raul myndi yfirgefa Real í sumar, og hafði hann verið orðaður við Schalke í nokkurn tíma auk þess sem að hann var sagður hafa áhuga á að leika á Englandi. Felix Magath, knattspyrnustjóri Schalke, var himinlifandi með nýjasta liðsmann sinn í samtali við heimasíðu félagsins. „Þetta eru frábærar fréttir fyrir Schalke og ég er ángður að við höfum náð í svo reyndan knattspyrnumann og frábæran framherja til félagsins.“






Carter