Pepsi-deild kvenna: Þjálfari Aftureldingar hættur
23.7.2010 | 17.17 | Boltinn
Ásgrímur Helgi Einarsson er hættur sem þjálfari kvennaliðs Aftureldingar. Ásgrímur tók við liðinu eftir síðasta tímabil en segir hann uppsögn sína af perónulegum ástæðum. Hann segir í samtali við vefsíðuna Fótbolti.net að þetta væri ekki að ganga upp fjölskyldulega séð. Konan hans hefði rétt áður en hann tók við liðinu tekið að sér þrjá flokka hjá UMFÁ og var ætlun að láta þetta ganga upp en tókst ekki betur en svo.
Leit er þegar hafin að nýjum þjálfara hjá Aftureldingu.