Pepsi-deildin: 13.umferðin hefst í kvöld

25.7.2010 | 08.54 | Boltinn
13. umferðin í Pepsi-deildinni hefst í kvöld með fimm leikjum. Umferðin klárast svo annað kvöld þegar Keflavík tekur á móti Grindavík í hinum eina sana suðurnesjaslag.  En leikur þessarar umferðar er án efa viðureign FH og Hauka og í fyrsta skipti í sögunni fer fram úrvalsdeildarleikur milli þessara félaga á hafnfirsku landssvæði en fyrri leikur þessara liða fór fram á Vodafonevellinum á Hlíðarenda. 

16:00 ÍBV - Valur
Spennandi leikur þarna á ferð þar sem ÍBV hefur komið liða mest á óvart í sumar og sitja í öðru sæti deildarinnar með 26. stig eins og topplið Breiðabliks. Valsmenn hafa verið að upp og ofan í sumar en eftir 1-1 jafntefli við FH í seinustu umferð voru talsverð batamerki á liðinu.  

19:15 Fram - Breiðablik
Hvað gerir toppliðið í kvöld. Voru slegnir út úr Evrópudeildinni í vikunni. Breiðablik hefur verið að spila jafnbesta boltann í sumar ásamt ÍBV en undanfarin ár höfum við fengið hörku viðureignir milli Fram og Breiðabliks og án efa vilja Framarar hafa að vinna enda langt síðan það gerðist. Blikar vilja örugglega sanna að þeir séu búnir að ná sér eftir Evrópudeildina og ætla sér áfram á toppi deildarinnar.

19:15 Stjarnan - Fylkir
Stjarnan ekki verið að ríða feitum hesti undanfarið en Fylkismenn komu ferskir inn í síðasta leik gegn Selfoss þar sem þeir gerðu ein fimm mörk. Þetta verður hörkuleikur á teppinum margfræga í Garðabænum og mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið þar sem Fylkir er með 15. stig í 6. sæti og Stjarnan með 14. stig í sætinu fyrir neðan.

19:15 Selfoss - KR
Nýliðar Selfoss hafa fengið að kynnast því að efstadeildin er allt annað og meira en deildin fyrir neðan. Ekkert hefur gengið né rekið hjá Árborgarliðinu og hefur það aðeins fengið átta stig í mótinu og síðasti sigurleikur var í maí.  Þeir hafa undanfarið verið að fá til sín nýja leikmenn og það verður fróðlegt að sjá hvernig þeim tekst til í kvöld gegn KR sem mætir með nýjan þjálfara í brúnni þar sem Rúnar Kristinsson er orðinn aðalmaðurinn vestur í bæ.  Spurning líka hvernig ferðalagið til Selfossar fer með KR-ingar þar sem þeir voru að spila í Úkraínu í vikunni í Evrópudeildinni.  

20:00 FH - Haukar
Það er búið að massa þennan leik heldur betur upp í Hafnarfirði og menn fyrir löngu búnir byrjaðir að skipast á orðum.  Segja má að þessi fyrsti leikur þessara liða í efstu deild á hafnfirskrigrund sé upp á líf og dauða fyrir bæði lið.  FH er sjö stigum á eftir toppliðunum tveimur og hafa ekki gefið upp vonina að halda Íslandsmeistaratitlinum hjá sér. Haukar án efa óheppnasta lið deildarinnar eða er hægt að tala þannig?  Allavega þá hafa þeir ekki unnið leik á þessu móti en gert sjö jafntefli. Hafa verið nálægt því að vinna leiki en getan ekki verið næg til þess hingað til.  Fullur Kaplakriki og brjáluð stemming eitthvað sem hafa beðið eftir lengi eftir.   Leikurinn er sýndur beint á Stöð2 Sport.






Carter