Maradona verður ekki áfram landsliðsþjálfari Argentínu
28.7.2010 | 09.46 | Eiríkur Guðmundsson
Knattspyrnusamband Argentínu greindi frá því í gærkvöldi að samningur Diego Maradona verði ekki framlengdur, en hann rann út eftir Heimsmeistarakeppnina.
Undir stjórn Maradona gekk Argentínu brösulega að koma sér á HM, en tókst það á endanum og sýndu lipra takta í fyrstu fjórum leikjum sínum á HM. Þeir féllu svo sannfærandi úr leik í 8-liða úrslitum með 4-0 tapi fyrir Þýskalandi.
Maradona hafði gefið í skyn að hann hefði áhuga á að halda áfam í starfi, en setti það sem skilyrði að allir starfsmenn hans héldu einnig áfram. Líklegt er talið að það hafi verið farið illa í Julio Grondona, forseta knattspyrnusambands Argentínu. Líklegasti eftirmaður Maradona er talinn vera Alejandro Sabella, þjálfari Estudiantes.