Evrópudeildin: Breiðablik og KR hafa lokið keppni

22.7.2010 | 22.00 | Boltinn
Breiðablik var síðasta félagið til að detta út úr Evrópukeppninni eftir að hafa tapað á heimavelli fyrir Motherwell 1-0 og samanlagt 2-0.  KR hafði fyrr í dag tapað 3-2 á útivelli fyrir FK Karpaty Lviv frá Úkraínu og samanlagt 6-2. Það var Kjartan Henry Finnbogason sem skoraði mörk KR. Ljóst er að staða íslensku liðana í Evrópukeppni er ekki til að hrópa húrra fyrir.

Það er alveg ljóst að eitthvað markmið verður að setja en auðvita spilast inn í þetta hversu heppin liðin eru með andstæðinga.  KR var eina félagið sem spilaði fjóra leiki en FH, Fylkir og Breiðablik aðeins tvo þetta árið.  Heimir Guðjónsson, þjálfari FH hitti naglann best á höfuðið þegar hann sagði að það þyrfti meiri atvinnumennsku í þetta.  






Carter