Evrópudeildin: Breiðablik er í dauðafæri gegn Motherwell

22.7.2010 | 10.06 | Boltinn
Topplið Breiðabliks í Pepsi-deildinni er í kvöld að fara að spila sinn stærsta leik til þessa í sumar þegar þeir taka á móti skoska liðinu Motherwell í undankeppni Evrópudeildarinnar.  Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli og þegar þetta er skrifað er búið að selja yfir 1000 miða en völlurinn tekur 1340 manns sæti og aðeins er leyfilegt að selja í sæti í þessari keppni.  Fyrri leikurinn sem fór fram í Skotlandi endaði með 1-0 sigri Motherwell. Segja má að Blikar séu í dauðafæri um að fara áfram í keppninni.   Um 200 stuðningsmenn Motherwell komu með liðinu til landsins þannig að það verður eitthvað stuð í kvöld.  Miðaverð er 1500 krónur og hægt er að kaupa miða á www.midi.is.  Leikurinn hefst klukkan 19:15.







Carter